Laus störf:

Við leitum að ráðgjöfum í hlutastarf og fullt starf 

Starfslýsing og helstu verkefni:

  • Ráðgjafar starfa eftir stefnu og verklagi Heilinda sem tekur mið af þjónustuáætlunum þjónustukaupanda.
  • Að veita skjólstæðingum félagsskap, leiðsögn og stuðning í daglegu lífi.
  • Að aðstoða skjólstæðinga við athafnir daglegs lífs.
  • Að aðstoða skjólstæðing við að halda heimili.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • 22 ára og eldri
  • Reynsla af sambærilegum störfum er kostur – hverskyns umönnunarstörf, félagsstörf og menntastörf.
  • Menntun á félagsvísinda, heilbrigðis-eða menntavísindasviði er kostur.
  • Eftirfarandi eiginleikar koma sér vel: Skynsemi, þolinmæði og jákvæðni í mannlegum samskiptum sem og stundvísi og faglegur metnaður.
  • Starfsmenn þurfa að undirrita trúnaðaryfirlýsingu og sýna fram á hreint sakavottorð samkvæmt lögum.

Umsóknir má senda á: heilindi@heilindi.is ásamt ferilsskrá.

Nánari upplýsingar veitir Helga Kr. Gilsdóttir í s. 8220365

Önnur laus störf:

Sértæk störf eru auglýst sérstaklega.

Það er alltaf opið fyrir almenna umsókn hjá Heilindum. Ferilskrá ásamt kynningarbréfi skal senda á heilindi@heilindi.is.